Gonnzublogg
-Búin á Bifröst-
Þá er maður orðinn
viðskiptafræðingur og ég kveð
Bifröst með blendnar tilfinningar. Auðvitað er maður feginn eftir mikið puð að vera loksins búinn með þetta en ég á eftir að sakna Bifrastar. Maður hugsar ekki núna til stundanna sem maður var að brjálast yfir
kennurum, hópmeðlimum og álagi heldur allra skemmtilegu stundanna. Varmaland, eða
Þarmaland eins og við kölluðum það, rokkaði feitt fyrstu önnina. Ég man að við
Marta blótuðum því að hafa ekki fengið inn á svæðinu en þetta var ein skemmtilegasta önnin
with out a doubt! Ég kynntist líka fljótt feimnu stelpunni í herberginu við hliðiná mér og sú vinátta verður alltaf til staðar. Við
Vala vorum sko alltaf til í tuskið og
Bakkus vinur okkar var oft með í för! Ég á alltaf eftir að muna eftir
Unnari og bjúganu,
Þóa og Kylie Minouge dansinum,
Ómari sem vaknaði alltaf of seint og drakk 12 lítra af kóki á viku, klámkjaftinum á
Adda, hvernig allir sprungu úr hlátri þegar
Marta byrjaði að hlægja, Trivial persuit sýki
Unnar,
Krumma að hræða
Mörtu og teikna á töfluna og svo mætti sko lengi telja.
Ég veit að þetta hljómar eins og léleg minningargrein en so what!!
Ár númer tvö var
sportkotsárið! Þetta var alveg frábær kommúna hjá okkur. Allar reyndu að vakna eldsnemma í
leikfimi og við töluðum um megranir, mataræði og æfingar daginn út og inn á milli þess sem við hrundum í það og skemmtum okkur ógeðslega vel.
Strákatal var líka ansi fyrirferðamikið eða eiginlega
kennaratal. Kennararnir máttu bara passa sig að mæta ekki illa klæddir því þá fengu þeir bara skot á sig. Rassinn á
Bjarna stefnumótunarkennara var ræddur til hlýtar auk flotts klæðnaðs
Birgis og Magnúsar Árna. Lisa og Jennifer djömmuðu þvílíkt feitt og
Lisa skokkaði á vegg.
"Sem er mjög gott" og
"Sem er kostur" var algjör
húmor. Það voru líka allir einhvern vegin
"að gera það". Ég á enn til að kíkja á
Sportkotssíðuna og lesa pistlana með þvílíkt bros á vör!
Þýskaland var algjört æði! Frábær hópur sem þangað fór og við
Jóhann höfðum það alveg þvílíkt notarlegt. Þýska sjónvarpið var ekki alveg að gera það svo við áttum margar ynidlegar stundir bara tvö að kjafta og drekka rauðvín eða eitthvað. Stundum eyddum við meira að segja heilu kvöldstundunum í að glamra á gítar og syngja... alveg eins og í
"Húsið á sléttunni" bara! Síðasta önnin var líka æðisleg. Frábært að búa með
Röggu, Davíð og Ölmu.
Úff... þetta átti nú ekki að verða svona langur pistill heldur aðeins inngangur í
útskriftina sjálfa. Það var geggjað veður á laugardaginn og þvílíkur fjöldi að útskrifast.
Rektor hafði lofað klukkutíma athöfn en raunin varð tveir tímar. Ég var orðin
svoooo reið! Hann hefði ekki þurft að tala svona lengi sjálfur og það hefði mátt sleppa
hátíðarræðunni!
Við
Jói vorum með svaka veislu. Það komu um 80 manns og þvílíkt
pakkaflóð. Það var mikið étið og drukkið en samt rosalegur afgangur. Kellingin sem sá um salinn var orðin alveg
brjáluð í lokin. Við máttum víst bara vera í salnum til 00.30 en fórum ekki fyrr en 01.30. Flestir tóku bíl niður á
Sólon en við vorum nokkur sem löbbuðum. Loksins þegar við komum á Sólon eftir viðkomu á
tælenskum karókíbar var svo mikil röð þar að við ákváðum bara að fara heim.
Það eru komnar inn
myndir frá kveldinu!! Smellið bara á
Myndir 2
¶
12:57 e.h.
-Útskrift-
Á morgun er
stóri dagurinn. Mamma er búin að vera í
stresskasti en ég hef varla mátt vera að því að spá í þessu. Ætlaði að finna mér einhverjar flottar
buxur og jakka en gleymdi því eiginlega bara og ég hef ekki enn þorað að kíkja hvort gömlu buxurnar mínar passi við toppinn. Mamma er nú ekki sátt við
stelpurasskatið sitt. Að hún skuli ekki vera búin að finna sér jakka og svona!! Það er nefnilega svoldið fyndið með hana mömmu mína að henni finnst ég
aldrei kaupa mér föt og hún getur alveg tekið sig til og gefið mér
pening og sagt mér nú að kaupa mér eitthvað
smart. Mér finnst ég hins vegar
alltaf vera að kaupa mér föt og fataskápurinn minn er að
springa!! En þetta var nú smá auka innskot. Ég hafði nú ekki hugsað mér að kaupa mér einhvern sérstakan jakka fyrir morgundaginn heldur ætlaði ég bara að vera í
bolnum. Foreldrum mínum finnst ég hins vegar allt of gliðruleg í toppnum einum saman. Ætli ég skelli einhverjum
druslum yfir axlirnar á mér.
Seinnipartinn í dag dekkuðum við upp salinn og svona og guð minn góður.. þegar ég var að setja
kerti í stjakana og
Jóhann að stilla græjurnar þá fannst mér hreinlega eins og við vorum að fara að halda
brúðkaupsveislu. Mamma og tengdó eru líka búnar að vera algjörar
dúfur.. þeir eiga allan heiðurinn af öllum undirbúningnum og ég skaut því bara að þeim að þetta yrði fín
generalprufa fyrir brúðkaupsveisluna.
Nú í þessu augnabliki er ég að sötra einn
ískaldan og horfa á lokaþátt
American Idol og það er barasta eins og maður sé að horfa á sambland af american football og Óskars verðlaununum. Ég meina come on... að syngja
þjóðsönginn, láttu mig æla!!
Elsku
Fantasia mín.. til hamingju með sigurinn. Persónulega fannst mér þú svoldið þreytt eftir að hafa hlustað á þig í nokkurn tíma.
Latoya London var mitt uppáhald!
Ég er nú ekki frá því að hann
Ruben sé búinn að fitna....
¶
10:22 e.h.
-Update-
Ég var nú eiginlega búin að ákveða það að þegar ég myndi
ljúka skólanum þá ætlaði ég að
hætta að blogga. Ég virðist hins vegar alltaf hafa einhverju frá að segja sem mig langar að deila með umheiminum.
Nú er ég búin að vinna í
kaupfélaginu í rúma viku og meira segja komin í
rauðan slopp og allt!! Fór á tvær fataheildsölur í morgun og juminn hvað ég haldi barasta að ég eigi eftir að fýla þetta !! Í dag fengu félagsmenn í kaupfélaginu senda heim
30% afsláttarmiða í fatadeildinni og það var alveg
troðið í allan dag. Gamla fólkið greinilega búið að bíða spennt eftir tilboðinu...
jújú, ég er sko félagsmaður!! Vonandi næ ég bara að selja allt þetta dóterí og get tekið fullt nýtt inn!
Við
Jói erum búin að vera að leita okkur af
íbúð núna undanfarið og rúntuðum aðeins um bæinn í gærkveldi. Sá ég svo ekki
Baddý standa aleina á einu hringtorginu og Jóhann sneri við á punktinum. Haldiði að Baddý hafi ekki verið að leita af
"Hafnarfjarðarperranum" sem sást víst til. Hún leit nú samt frekar út fyrir að vera
"undercover" í von um að hann myndi halda að hún væri
6 ára og bjóða henni sælgæti og að koma að skoða hvolpinn sinn.
Við fórum að skoða fyrstu íbúðina
í kvöld. Svoldið skondið að konan sem á íbúðina er systir mömmu hennar
Sigrúnar Daggar vinkonu. Okkur leist bara ágætlega á en ég held nú að maður þurfi nú að skoða nokkuð margar íbúðir áður en maður gerir upp hug sinn.
Ég er ekki enn búin að fá einkunn fyrir bs ritgerðina en fæ hana vonandi á morgun. Við ætluðum að vera með smá
útskriftarpartý á laugardaginn og það mun líklegast enda í
80 manna veislu... samt bara alveg
nánustu!! Mömmur okkar
Jóhanns eru strax farnar að kvíða
brúðkaupinu held ég!!
¶
10:15 e.h.
Samkaup góðan daginn!!
Jæja þá er
viðskiptafræðingurinn byrjaður að vinna og brjálað að gera í að læra allt.
Gunnar Egill matar í mig upplýsingum.. ferð í concord, skrár og birgðir og svo þetta svo velurðu F4 og svo alt y og svo F6 og ég veit ekki hvað og hvað. Þetta fer allt saman inn um annað og út um hitt. Stundum fæ ég svona "ég læri þetta aldrei" tilfinningu og langar bara að fara að aðstoða
Sóley í kerrunum sko!!
Síðustu tvo daga hef ég verið að laga til í
búsáhaldardeildinni, skrúbba, raða og verðmerkja. já og ganga frá
jóladóti!! Svo eru auðvitað allir komandi til mín alveg..
hva! ert þú byrjuð hér?? og ég bara
jájá. Þá kemur svona
"eru nú viðskiptafræðingarnir farnir að afgreiða í Samkaup" svipur á fólk og ég svona..
já ég er sko aðstoðarverslunarstjóri.. alveg hallærisleg. þá alveg
nú jájá, en flott.
Í gær var
kvennareið Mána og við
Marta skelltum okkur auðvitað. Ógeðslega gaman eins og alltaf. Riðum út í
Garð og borðuðum þar austurlenskan mat frá
Soho. Drukkum nokkra öllara og fórum í
Limbó og svona.. eða bara ég..
Mörtu fannst það eitthvað hallærislegt held ég.
Á heimleiðinni vorum við alveg í kasti á eftir henni mömmu minni. Hún var orðin ansi hress og hallaði alltaf meira og meira á vinstri hliðina. Við biðum bara eftir að hún rúllaði af en hann
Dropi gekk gjörsamlega undir henni.
Nú er ég að fara uppá völl að læra á innritunarkerfi
Vallarvina svo ég geti byrjað það á fimmtudaginn eftir viku. Ég er alveg að sjá fyrir mér að sumarið verði
Crazy vinna!!
¶
7:32 e.h.
-Notið dagsins-
Við kvöddum Bifröstina með blendnar tilfinningar í gærkveldi. Gott að vera búinn en jii ef ég á ekki bara eftir að sakna þess að vera þarna.
Ég fór með skýrsluna í prent í morgun og er að fara að sækja hana. Mér leið eins og ég væri að láta litla barnið mitt í hendurnar á ókunnugu fólki. Svona.. passið þið þetta nú vel og gerið þetta alveg rétt! Ég var sko búin að prenta svona demo eins og skýrslan á nákvæmlega að líta út.
Sæl og glöð hélt ég í Kringluna í þeim tilgangi að hressa uppá "sveita-lufsulúkkið". Ég var ekki lengi að spreða 22þúsund kalli chichiiinng! Keypti mér gasalega lekkerar gallabuxur með uppábroti í Oasis svona eins og eru svo móðins.. svo einn skvísubol af því ég á svo fáa svoleiðis *hóst*. Nú ég varð auðvitað að fá mér skó við stuttu gallabuxurnar og fann mér svaka gelluskó sem kostuðu líka bara 3.900. Hmm.. nú var vandi á höndum.. mig langaði bæði í bleika og hvíta.. æi votðefokk.. þeir eru svo ódýrir að ég kaupi bara báða
¶
4:06 e.h.
-FINIDO-
Maður má víst ekki sleppa því að blogga í nokkra daga... það verður allt
vitlaust á msn-inu!!
Ég er annars ekki búin að hafa mikið að gera annað en að liggja yfir
ritgerðinni síðustu daga.
Yfirlesturinn frá
Friðrik kom ágætlega út og ég þurfti aðeins að
laga hérna og
bæta inn í þarna og svona. Þessar
"smá" breytingar eru samt búnar að taka mig
þrjá daga. Ég hef hangið á
bókasafninu með fínni grúbbu, þeim
Unni, Hrannari, Simma og Jóni. Ég var ekki
vinsælust í dag þegar ég
montaði mig með
liggaliggalái og tilheyrandi að ég væri
BÚIN!! Sendi á Friðrik í
LOKAyfirlestur og það er bara eins gott að hann
gúdderi þetta.
Málfundafélag Bifrastar sló upp veislu mér til
heiðurs í dag þar sem ég kláraði ritgerðina. Öllum íbúum
Bifrastar var boðið upp á grillaða
pulsu og bjór, ekki slæmt það!
En hvernig er það...ætla
Bifrestingar ekkert að fagna að loknum
skilum?? Ég var að reyna að dobbla hana
Unni til að vera með eitt stykki
partý eða svo...
¶
9:11 e.h.
-Aldrei aftur FRIENDS-
Horfðum á lokaþættina af
Friends í gær.
Ææææðislegir þættir sko!! Síðasti þátturin var fyrsti og síðasti
Friends þátturinn sem ég hef
grátið yfir! Ég veit ekki hvort ég hafi verið að gráta yfir þessum
"goodbye" momentum eða því að ég ætti aldrei aftur eftir að sjá
nýjan Friends þátt. Ég held bara
bæði! Jóhanni fannst þetta mjög
fyndið. Líka kannski þar sem ég
táraðist ekki bara pínu heldur kom alveg
buhuuuuu þrátt fyrir að ég hafi reynt að
pína það inní mér!
Friðrik er ekkert farinn að láta
heyra í sér og ég bara bíð og bíð og bíð!
¶
12:23 e.h.
-Stund milli stríða-
Ég veit að skrif mín um þessaða blessuðu
lokaritgerð eru kannski farin að vera
þreytt en það er bara það eina sem er að gerast í lífinu mínu
þessa dagana. Í kvöld fór ég í fyrsta skiptið í aðrar buxur en
Casall frá því á laugardaginn og blés meira að segja á mér
hárið!! Undanfarna daga hef ég
vaknað, tannburstað mig, eldað mér
haframjöl með rúsínum, tekið inn
vítamínin, tannburstað mig aftur, sett á mig
maskara og rölt út í
skóla með fullan poka af lesefni um
markaðshlutun. Þar hef ég síðan dvalið fram langt fram eftir
kvöldi og rotast þegar heim er komið.
Í kvöld
elduðum við sambýlingarnir saman
,,síðustu kvöldmáltíðina" og í framhaldinu kíktum við aðeins á kaffihúsið í einn
fladöl.
Marta mín kíkti með okkur og áttum við gott spjall um allt og ekki neitt.
Ritgerðin fór loks í fyrsta
yfirlestur í fyrradag til flæðimeistarans
Ólafar Daggar. Ca tveimur tímum eftir að ég sendi henni skrímslið fékk ég meil frá henni sem var hennar
"first impression" eftir að hafa lesið fimm kafla. Skilaboðin voru á þessa leið:
Gunnhildur þú ert að drepa mig. Þetta er allt of langt og þú verður að skerpa á fókusinum!!
Ég verð að viðurkenna að ég fékk nettan
sting fyrir hjartað og reply-aði:
Elsku Ólöf mín, ég ætlaði nú ekki að drepa þig úr leiðindum með þessu. Hlakka til að sjá kommentin á morgun.
Nokkru seinna sendi Ólöf mér annað meil um að
seinni hluti ritgerðarinnar væri
mun betri og því væri þetta nú ekki svona slæmt eins og
meilið gæfi til kynna. Mér varð
mjög létt. Nú er ég búin að eyða síðasta sólarhring í að
lagfæra og betrumbæta. Laga
flæði og skerpa á
fókus þið skiljið... og sendi á
Friðrik í kvöld. Það þýðir ekkert annað en að
krossleggja fingur núna og vona eftir góðum en ekki mjög miklum krítiseringum.
Góðar stundir kæru vinir
¶
2:01 f.h.
-Nóg að gera-
Maður verður að hafa sig allan við að vinna í
bs þessa dagana. Það er svo
hættulegt að þegar maður sér fyrir
endann á þessu þá finnst manni maður vera bara kominn í
frí.
Smá
ábending til þeirra sem fara í
bs í haust: Reynið að taka fleiri kúrsa fyrir áramót eða fyrri önnina eftir áramót og vera í engum kúrsum seinni önnina þegar maður er
sveittur í bs.
Samningatæknikúrsinn hjá Sigga var nokkuð þægilegur en þessi
viðskiptasiðfræðikúrs er algjört helvíti á jörðu. Þurfum að skila
"final paper" í honum á
föstudaginn og maður má barasta ekkert vera að því að vinna í einhverju svoleiðis núna. Í þessu verkefni erum við nýir eigendur
DV og eigum að búa til
siðferðisreglur fyrir blaðamenn.
Eitt sem ég er að spá.... ætla bs´ingar að halda
útskriftarveislu?? Mamma er farin að
ýta svoldið á mig að svara... ég veit ekki.. heldur maður eitthvað
svoleiðis? Ég er meira að sjá fyrir mér
gott partý með vinunum bara.
¶
12:00 e.h.
-The day after-
Vaknaði með
sprungna vör. Mundi ekki hvernig ég hafði komist heim eða hvenær.
Jói sagðist hafa leitt mig heim eftir
ballið og
háttað mig. Ég röflaði allan tímann um að ég væri svo
ástfangin af honum og segjandi..
taktu mig!! Efast reyndar um að ég hafi verið eitthvað
getnó, haugadrukkin!! Fór yfir til
Mörtu þegar ég vaknaði... hún fór heim að pissa um
2 leytið í nótt með
Smára sínum og það endaði víst í einhverjum
hamagangi.
Vala lá í fötunum sínum í læstu herbergi
Smára og ég
kúrði með henni í smátíma. Fórum
þrjár enn haugafullar í
Hreddann að éta... hvað er málið með að selja ekki
pizzur fyrir klukkan 17.00?? Hittum
Höllu í Hreddanum og hún var að segja okkur að ég hefði verið að syngja með
Kalla Bjarna en ég man ekkert eftir því og ég get ekki ímyndað mér að ég hafi verið að gera
góða hluti. Hún sagðist hafa verið beint fyrir framan mig og var í því að
reisa mig við því ég var alltaf
dettandi. Enda er ég
aum á síðunni og hökunni og jú í
vörinni eftir að einhver kíldi mig óvart!
Liggjum uppí
sófa núna og
Ólöf er komin.. hún var með
jakkann minn sem betur fer en
veskin okkar Völu fengu að lúlla á
kaffihúsinu.
Ég er búin að setja inn
myndir en nenni ekki að skíra þær núna.. þær segja sig svoldið sjálfar.
¶
2:31 e.h.